Móðir jörð.
Við erum efnið,
fæðumst og deyjum,
hér sem við fyrst urðum
og seinna hverfum til.

Við erum andinn,
gæðum líf og eyðum,
hugsum, en þekkjum ekki,
hvaðan verður til.

Hvað ræðum gerðum sona,
sem spilla kostum þínum,
rífa hár þitt og hold
í von um auð,-ó móðir?

Þeir misþyrma fóstru sinni,
í græðgi og heimsku.
Eru forlögin þeirra
að verða síðastir sona?
- Ó móðir jörð.

1990
 
Sigurbjörn Svavarsson
1949 - ...


Ljóð eftir Sigurbjörn Svavarsson

Barnið (Að horfa á börnin lítil.)
Dögun.
Lífsdans.
Hugurinn
Móðir jörð.
SÁL
Stjörnur og menn.
Stundin.
TÍÐIR
Systur
Strá
Framundan
Bak við sól og sunnan mána.
Sköpun
Ungur
Maður sem dó. (Í minningu Kristjáns)
G(r)áta
Hundurinn Bjartur.
Framtíðarland?
Leiðin okkar.
Blessun húss
Máninn
Sumarið